Skilmálar

Upplýsingar um seljanda:
 

Andaglas ehf. kt: 710521-1230  VSK-númer 142200, Garðastræti 6,101 Reykjavík. Andaglas ehf. sérhæfir sig í innflutningi og sölu á heimilisvarningi & nytjavöru. Afhending pantana er háð réttum vöru upplýsingum um verð og lagerstöðu.

 

Verð:

Sendingakostnaður innan Íslands er kr. 1900 kr.- frítt fyrir upphæðir yfir 10.000 kr.- á höfuðborgarsvæðinu

Öll verð eru með 11% eða 24% virðisaukaskatti. Pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti eða í það valhólf sem viðskiptavinur hefur hjá Íslandspósti.

 

Greitt á netinu:

Hægt er að greiða með: Visa, Mastercard, Visa Electron, & Maestro.​

Afhending:

Hægt er að fá vöruna senda heim með pósti. Pakkar undir 2kg. að þyngd í venjulegri stærð eru sendir í B pósti.

Allar pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Einnig er hægt að fá afgreiðslu fyrr í verslun á opnunartíma. Tími frá pöntun til afhendingar er venjulega 2-4 virkir dagar, fyrir vöru sem til er á lager. Kaupandi á rétt á að hætta við pöntun ef tafir verða á afgreiðslu til okkar. Kaupandi ber ábyrgð á að ganga úr skugga um að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. Kaupandi fær skilaboð í tölvupósti þegar við afgreiðum vöruna frá okkur.

 

Upplýsingar viðskiptavina:

Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Andaglas ehf ábyrgist að farið sé með þessar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær verði ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

Útsölur og vöruskil:

Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

 

Vöruskil:

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá pöntun. Kaupandi getur afturkallað pöntun sér að kostnaðarlausu ef tafir verða á afgreiðslu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar kaupanda varðandi gæði eða lit getur kaupandi skilað vörunni innan 14 daga, Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneingarnóta eftir að varan er móttekin. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Vinsamlega sendið tölvupóst á netfangið florenslola@gmail.com áður en vöru er skilað.

 

Inneignarnótur:

Við vöruskil á viðskiptavinur rétt á að fá afhenta inneignarnótu ef ný vara er ekki tekin upp í þá vöru sem skilað er.
 

Kvartanir:

Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu. Sé gallaðri vöru skilað fæst sendingarkostnaður endurgreiddur. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því hvetjum við viðskiptavini okkar til að hafa samband telji þeir að vara eða þjónusta hafi verið ófullnægjandi.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við meðfylgjandi sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. 

Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

 

Aðrar spurningar:

Ef þú hefur fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.

Sendu tölvupóst á florenslola@gmail.com eða hafðu samband í síma 6597535